Áherslan er á prjón á þessu námskeiði. Þekktir danskir prjónahönnuðir sækja okkur heim.
Helga Isager: Peysuhönnun.
Hannaðu eigin peysu með þeirri prjóntækni sem heillar þig. Á þessu námskeiði mun Helga kenna ýmsa spennandi tækni sem hentar í peysur og hvernig reikna á út peysu sem passa hverjum og einum.
Lotte Kjær: Húfuprjón og vélprjón.
Á námskeiðinu er unnið á einfaldar prjónavélar með fjölbreyttum aðferðum. Lotte kennir hvernig hún vinnur með mismunandi garntegundir, liti og mynstur með nýstárlegum og fjölbreyttum samsetningum.
Helga Jóna Þórunnardóttir: Prjóntækni og frágangur.
Hvað gerir punktinn yfir i-ið; kantar, stroff, affellingar, uppfitjanir og frágangur á prjónaflíkum.
|